Thursday, April 19, 2007

bless....!

búin að gefast upp á þessari síðu....!

farið á
elinosk.bloggar.is

Sunday, April 15, 2007

víí...einmitt

Hérna!

1. Hvað heitir þú?

2. Hvað ertu gamall/gömul ?

3. Ertu á lausu eða föstu?

4. Hvaða tónlist hlustarðu mest á?

5. Hvað er það fyrsta sem þér dettur í hug þegar þú sérð mig?

6. Hvaða 5 hlutir minna þig á mig?

7. Ef ég myndi biðja þig um msn-ið þitt, hverju myndirðu svara?

8. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?

9. Hver er "idolið" þitt?

10. Hvern þykir þér vænst um?

11. Ertu ástfangin/n ?

12. Hefurðu verið ástfangin/n ?

13. Hver er heitasti skemmtistaðurinn í dag?

Ég veit að þú ert að lesa...svo SVARAÐU! (eða skildu allavega eftir smá spor :))

Saturday, April 14, 2007

páskafríið er farið! :(

Páskafríið er búið...snuff :( Ég afrekaði margt, en samt ekki, látum punktana taka við:
- fór til tannlæknis í RVK...ég er með skemmd(ir) grát...
- fór á framhaldsskólamót (í hestum auðvitað aularnir ykkar, hvað annað?) Láru gekk víst vel ;)
- fór á hestamót heima, tölt og fimmgang, Óli bró vann bæði :) Og var þar með búin að vinna öll mótin í vetur og var því stigahæstur með fullt hús stiga :) (og ég afhenti honum bikarinn ;) hehe)
- Hjálpaði til í sveitinni, við mokuðum út úr fjárhúsunum (skít já) ég fann lykt af mér í þrjá daga á eftir!
- fór til rvk AFTUR. Í þetta sinn sem faglegur ráðgjafi Ingu Sóleyjar í brúðarkjólaleit ;) hehe
- Fór á hetbak (bara einu sinni :() og bikkjan skildi mig eftir Í JÖRÐINNI! Mér er ennþá illt í bakinu!
- Tók eina vakt í Skálanum, vá dugeg hehe!
- Borðaði mikið af góðum mat
- Borðaði páskaeggið mitt alveg sjálf ;) reyndar nokkrum dögum eftir páska, en hey það hefur ekki gerst síðan aldrei eða e-ð ;)
- Fór á öll djömm sem buðust á dósinni...þau voru tvö ;)
- Bólgan á ökklanum mínum hvarf NÆSTUM ÞVÍ ;) Og það er Stínu tengdamömmu Óla bró að þakka ;) Hún nuddaði þetta í klessu :)

Jæja, þetta var svona e-ð af því sem ég gerði ásamt því að sofa slatta mikið ;) Var svo að fatta að ég er búin að segja frá þessu flestu...kemur Elín, en ég ætla samt að pósta þessu ;)

Og já, ég vaknaði klukkan 10 Á LAUGARDAGSMORGNI og gat ekki sofið meir! What´s going on???

Söngkeppnin í kvöld...ÁFRAM BIRNA :)

Bless!
Elín Ósk

Monday, April 09, 2007

hörð yess...

Ég var hrikalega dugleg og henti inn myndum bæði frá Bakkanum á miðvikudaginn og Páskaballinum ;)

http://www.dropshots.com/elinoskm
enjoy :)

Elín Ósk

Wednesday, April 04, 2007

einu sinni smakkað þú getur ekki hætt...

já þessi setning á vel við mig núna! Eins og margir vita þá datt ég af baki í sumar í fyrsta skipti...ég er ekki búin að fara oft á bak í vetur svo að það er ekki alveg að marka hvað er liðin langur tími síðan síðast...en ég datt af baki í dag!!! :@ Ég var alls ekki á neinum vitleysing, var búin í útreiðartúr og var rétt að koma heim að húsi og var búin að slaka á taumnum og allt voða afslappað e-ð...þangað til allt í einu merin bara stökk til hliðar og ég lá eftir í jörðinni ! :S Veit ekki alveg hvað var í gangi...en ég er góð ;) Soldið vont þar sem ég lenti á einhverjum steinum og e-ð...en ég vona að bakið jafni sig fljótt ;) hehe

Annars er got að frétta...búin að fara til rvk...TVISVAR á föstudaginn og svo aftur á mánudaginn og var þangað til í gær. Fór með Ingu Sóley að máta brúðarkjóla :) Shii hvað það er erfitt að velja BARA EINN kjól..úff!

Var búin að blogga fullt um daginn um hitt og þetta aðallega það að Óli bró vann bæði töltið og fjórganginn á laugardaginn og vann þá líka orðin stigahæstur með fullt hús eftir mótaröðina :) Ógó stolt af stóra bró sko ;) hehe

Farin...
Elín Ósk

Wednesday, March 28, 2007

:)

Ég er endurnærð :) Ég svaf svo vel í nótt...hef ekki sofið alemennilega síðan ég veit ekki hvenær...vonandi eru andvökunæturnar liðin tíð í bili :)

Ég er búin að gera mitt góðverk í dag :) Ég þreyf bílinn minn :P Nú er hann aftur silfurgrár en ekki einhvernvegin gulbrúnn eins og hann er búin að vera lengi...jakk! En það komu samt ekkert fagurri blettir í ljós! Hann er einn tjörupollur! ojj bara...en ég kippi því í liðinn þegar ég kem heim á dósina.

Heim á morgun, suður annað kvöld og svo veit ég ekki hvort að ég verði áfram fyrir sunnan fram á sunnudag eða fari aftur heim með pabba á föstudag. Það er mót á laugardaginn og afmæli á sunnudaginn...langar að vera á öllum stöðunum. úff....alltaf e-ð svona!

Svo er það staðfest að ég er búin í skólanum 29. maí :) úff can't wayt :) Pantaði líka stúdentamyndatöku áðan, er ekki ennþá viss hvort ég fari í hana ;) hehe ætla ákveða það fyrir helgi. Veit e-r hvernig dagskráin er 17.júní? frá 10-14 er það ekki, en hvað er um kvöldið??

Jæja...uppeldisfræðiskýrsla bíður.
Elín Ósk

Thursday, March 22, 2007

ofvirk í blogginu!!

Okey nóg komið af væli um hvað skuli gera með þennan hest...

Það er alveg að koma páskafrí :) Sem er geðveikt ;) Sem þýðir það að ég er að fara suður, til tannsa :S En aðalmálið er framhaldsskólamótið :) Sem verður alla helgina...Ég verð í klappliðinu með dúskana og öskra klöpp á eftir Láru, Þóru, James og Ingu sem eru að fara að keppa fyrir Eyfirðing sem er félag sem var gert úr bæði HestMA sem er í MA og Fram úr hófið held ég það heiti í VMA :) Ekkert nema gott um það að segja ;) Þau eiga pottó eftir að standa sig vel...

Svo er bara páskafrí, sem þýðir að skólinn er að verða búinn :S:S shii...ég er að fara að verða stúdent. Ég tek bara eitt próf ég og ég hef heyrt að það sé bara fyrsta prófið þannig að ég verð kannski bara búin 29. maí :) Sem er alveg brilliant því þá get ég byrjað að vinna fyrr oooog svo á bumbukrílið á Sveins að fæðast þarna 25...úff hvað ég hlakka til :) Ég segi að það sé stelpa...næstum allir aðrir strákur...hmm ;) hehe

Well well...þarf að leggja mig þar sem ég svaf ekki rass í nótt!! Það er líka söngkeppni MA í kvöld :) Can't wait ;)
Og já..Jóhanna er tvítug í dag..munið að óska henni til hamingju og ég bið hana bara aftur velkomna á þrítugsaldurinn ;) hehe

Elín Ósk :)

ps...ég á skilið comment frá öllum ég er búin að blogga svo mikið undfarið ;) hehe